Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2010
Laugardagur, 20. febrúar 2010
Hvernig hundaþjálfari viltu vera?
Allir hundaeigendur sem þjálfa hundana sína eru hundaþjálfarar.
En svo er líka það, að það eru til mis duglegir hundaþjálfarar. Sumir hundaþjálfarar telja að þeir séu það duglegir að þeir vilja hjálpa öðrum. Eins og ég td dæmis.
Hundaþjálfarar sem halda námskeið og taka einkatíma eru mjög mismunandi, varðandi hvernig aðferð þeir beita til að kenna hundum. Því það eru til nokkrar aðferðir til að kenna hundum hlýðni.
Þegar við förum á námskeið, þá verðum við að vera meðvituð um að það þarf ekki endilega að vera rétt fyrir ykkur það sem kennarinn kennir.
Við erum öll misjöfn sem persónur og þá hentar ekki " ein aðferð " á alla hundaeigendur.
Góður hundaþjálfari á að geta lesið hundaeigendur og forvitnast um hvernig aðferð þeir vilja kenna sínum hundum og gefa ráð út frá því.
Þegar hundaþjálfari segir eina aðferð, og þér finnst hún röng eða að þér finnst hún mjög erfið að fylgja eftir, þá er hún röng fyrir þig. Hún þarf ekkert endilega að vera röng fyrir næsta mann.
Þessvegna verðum við að vera meðvituð um hvort við séum sammála því sem kennarinn sýnir okkur.
Til eru Old school kennarar sem hafa sína aðferð og leggja mikla orku í að segja að þeirra aðferð er sú besta. Ef þið lendið í þannig kennara og þið eruð í raun ósammála honum þá ættu þið bara að finna nýjan hundaþjálfara til að kenna ykkur.
En til eru líka Old school kennarar sem kenna sínar aðferðir en virða samt ef maður vill ekki þjálfa eins og hann og aðstoða mann við að ná árangri á annan hátt.
Mér langaði að nefna í stuttum orðum mismunandi þjálfunar aðferðir.
Old school: Sú aðferð er elst og byggist á því að hundarnir eiga að verða mönnum undirgefnir og hlýða af skyldu. Ekki endilega vilja.
Neikvæð Styrkning: Þá er kennt hundum hvernig á að gera með því að beita þeim eitthverju sem er neikvætt fyrir hundinn. Td. að kippa í tauminn þegar hundurinn labbar ekki fallega við hæl. Þótt hann hefur aldrei lært þetta áður, og er að fara í sína fyrstu kennslustund í þessu þá er kippt harkalega í tauminn til að sýna honum hvar er æskilegt að hann sé. Gjarnan er notast við keðju í stað hálsól.
Jákvæð refsing: Að hætta að kippa í tauminn þegar hundurinn er á réttum stað við hæl, er talið vera jákvæð refsing, semsagt að þá hættir refsinginn. Þá er gefið nammi og hrósað.
Neikvæð refsing: Þá er notast við að taka eitthvað burt, þar að segja eitthvað sem hundurinn vill einmitt þá. Td. að ef hann dregur í tauminn, því hann vill fara áfram, þá er það tekið burt. Semsagt með því að hreinlega stoppa, eða þá fara afturábak.
Jákvæð styrking: Hérna er notast við, að þegar hundurinn, kannski óvart er á réttum stað við hæl, þá fær hann verðlaun fyrir það. td nammi og eða hrós. Einnig getum við leiðbeint hann á réttan stað með því að notast við nammi og þannig lærir hann með mörgum endurtekningum hvað við erum að meina.
Clicker þjálfun: Klikker þjálfun er nýtísku þjálfunaraðferð sem búin að marg sanna að hefur mjög góð áhrif á hunda og hundaeigendur. Það er talað um að klikker þjálfun sé lífstill, og byggist hann á því að notast við jákvæða styrkingu. Það er fókus á að láta hundinn sjálfan finna uppá hegðunni sem við viljum sjá. Þegar hundurinn gerir rétta hegðun, þá fær hann "klikk". þetta er lítið box sem ýtt er á takka og þá kemur klikk hljóð. Þetta klikk hljóð æfum við hundinn í að sé mjög jákvætt og þýðir " já þú ert að gera rétt".
Núna þarftu að meta það hvað er réttast fyrir þig. Ég persónulega er mikið í Jákvæðri styrkingu. Semsagt að verðlauna góða hegðun og hunsa slæma, einnig notast ég við neikvæða refsingu, þegar ég tek burt það sem hundurinn vildi sem straff. Þótt ég reyni sem mest að bara einbeita mér á að verðlauna góða hegðun og ef æfing mistekst þá hunsa ég hundinn og tek smá pásu. Semsagt að hann fékk ekkert. Þeir taka eftir því svo vel, þegar þeir eru vanir að fá hrós og nammi eftir kúnstir.
Ég er líka mikið fyrir vísindinn bakvið klikker þjálfun, þótt ég hef aldrei sjálf æft með klikker eða farið á námskeið með klikker þjálfun þá notast ég við það að leyfa hundinum sjáfur að vilja gera æfingar.
Dæmi um það er að núna þegar ég hef verið að æfa hæl gönguna frekar mikið þá sé ég að Luna, þegar við erum úti að labba td á hundasvæðinu og hún er laus, þá kemur hún sjálfviljug vinstra meginn við mig og labbar við hæl, horfið uppá mig. Hún velur sjálf að labba við hæl, því hún vet að þá fær hún athygli og hrós, og kannski fær hun nammi eða betra, að ég tek fram boltan til að kasta.
Svo, hvernig hundaþjálfari vilt þú vera?
Ps. ég vil nota tækifærið og auglýsa hér að það er að byrja klikker námskeið á Voffaborg fljótlega á vegum töfradogs.com
Námskeiðið kostar 15.000 kr og er innifalið í því námsgögn og clicker.
Skráning og nánari upplýsingar er á email runar@tofradogs.com eða í síma 865-4165
Hvort sem þú ætlar þér að þjálfa með klikker eða ekki, þá mæli ég með því að læra þessa hugmyndafræði.
ég sjálf er mikið að spá hvort ég ætti að taka þetta námskeið :) Því 15þús fyrir námskeiðið er mun ódyrara en hundakólar eru að bjóða uppá, en þeir eru í 26 þús til 30þús kr klassanum.
Kveðja
Heiðrún & Luna
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Föstudagur, 19. febrúar 2010
Spurningar frá ykkur
Í þessari færslu ætla ég að opna fyrir umræðu og spurningum frá ykkur.
Ég mun svara eftir bestu getu og aðrir sem hafa svör eða sambærilega reynslu geta líka skrifað inn.
Litlar spurningar sem og stærri eru velkomnar
Kveðja
Heiðrún& Luna.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (27)
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 12
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 11
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Nýjustu færslur
- Kæri Tómas Oddur - varðandi að hunsa hundareglur
- Hvolpar og hátíðarnar
- Skulum ekki banna fleiri hundategundir...
- hundaþjálfara nám.
- Hversu oft á viku æfiru hundinn?
- Sumir lausagöngu hundar kunna ekki að lesa....
- Spurning frá lesanda. - Sveitahundar
- Páska æfingar
- Innkall
- Fyrsti hvolpurinn/ einkatími
- Taumganga.
- Hundar þurfa að hafa garð?
- Hvernig hundaþjálfari viltu vera?
- Spurningar frá ykkur
- Þeir vilja banna hundahald á Akranesi! (??)
Eldri færslur
- Júní 2012
- Desember 2011
- Ágúst 2011
- Janúar 2011
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Febrúar 2009
- Nóvember 2008
- Október 2008
- Júlí 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Bloggvinir
Spurning vikunar
Tenglar
Námskeið
- Taumganga stutt námskeið til að læra taumgöngu og ná sambandi við hundinn úti
- Fyrsti hvolpurinn/einkatími hægt er að panta mig í heimsókn til að fræðast um hvolpinn.
- Innkall Auðveldar æfingar til að bæta innkallið.