Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2011
Föstudagur, 5. ágúst 2011
Skulum ekki banna fleiri hundategundir...
Skulum frekar banna fleiri hundaeigendur...
Fyrst langar mig að byrja á því að harma það sem gerðist í Reykjanesbæ. Það er alltaf leiðinlegt þegar hundur bítur barn.
En þessi frétt er aðeins öðruvísi en fréttir sem hafa verið undan farið. Hérna virðist ekki sem þetta hafi verið óvart* eins og oftast þegar hundur og barn eiga við sögu. Ef þetta gerðist eins og lýst var í fréttinni, eigandinn réði ekkki við hundinn og hann sleit sig lausan til þess eins og ráðast á stelpurnar og hljóp svo jafnvel eftir þeim og eigandi lét sig bara hverfa?? Þá þýðir það að eigandinn ber fulla ábyrgð á því sem gerðist og á í raun að lóga honum. Eða já það er nú ekki hægt en svona eigendur eiga ekki að vera með hunda.
Eins og Valgerður framkvæmdastjóri Hundaræktunarfélags Íslands tók fram í viðtali við Fréttablaðið þá er stórt vandamál að eigendur sem fá sér hunda til að "verja sig og sitt" og hefur það aukist eftir hrun.
Hún talar um að Rottweiler hundar sem bardagahund en það er algengur miskilningur þeir hafa aldrei verið ræktaðir fyrir bardaga heldur voru þeir ræktaðir sem smalahundar fyrir nautgripi. Ástæðan fyrir að skottið var tekið af og eyrun klippt var út af því að nautin voru alltaf að toga í skottið á þeim og bíta á þeim eyrun.
Þeir voru ræktaðir til að verða stórir og þungir til að geta smalað nautum og svo voru þeir nýttir sem dráttarhundar og vinsælt var að slátrarar notuðu þá þar sem þeir voru með ákveðið útlit sem gerði að verkum að þjófar þorðu síðar að stela vagni slátrarans.
Í stað þess að banna fleiri tegundir legg ég fram nokkrar aðrar hugmyndir:
- að reglur verða hertar varðandi eftirlit á óskráðum hundum í bæjarfélögum. Án þess að ég veit það var þessi hundur líklega ekki með undanþágu á hundasamþykkt semsagt ekki skráður.
- að það sé bannað að gefa hunda., þeir verða að kosta minnsta kosti 10þúsund + gjöld sem ræktandi leggur út. Td ormahreinsun og örmerkning. Semsagt að blendingur kosti að lágmarki 10 þús. **
- að þú þurfi sérstakt leyfi til að halda fleiri en tvo/þrjá hunda. Ef þú ert komin með stærri flokk þá haga hundar sér öðruvísi þegar þeir hitta aðra hunda. Bakka hvern annan upp og verða meiri töffarar.
- Að taka burtu eða lækka vsk á hundanámskeiðum. Það er ekki sérstaklega hvetjandi að þurfa að borga 30þús fyrir grunnnámskeið og eitt námskeið er ekki nóg til að læra allt sem þarf, það þarf að fara á framhaldsnámskeið til að ná öllu því helsta. Þessvegna væri mjög gott að geta haft námskeiðin ódýrari.
- Hafa skýrari reglur um hvað á að kenna á grunnnámskeiði. Námskeiðin sem eru í boði eru mjög mismunandi og fá hundaþjálfarar frjálsar hendur til að kenna það bóklega, eina krafan sem er gerð er að tala um reglur og hundasamþykkt. það þurfa að vera reglur um að fara ýtarlega í td merkjamál hunda og samband milli hunda og barna.
- Gera hundaþjálfara að viðurkenndum titli þannig að hver sem er sem þykist kunna um hunda megi ekki kalla sig hundaþjálfara. Eða búa til nýtt orð yfir þá sem hafa lært hundaþjálfun. Td hundakennari eða álíka orð.
- Banna hvolpaframleiðslu fyrirtæki! Það er vel vitað að hvolpar þurfa að fá að alast upp á heimilum alveg frá fæðingu til þess að verða góðir heimilishundar. Það segir sig sjálft að hundur sem fæðist í búri í fyrirtæki með 159 hunda í kringum sig verður ekki eðlilegur og góður heimilishundur. Og þetta á líka við hvolpa sem alast upp í hlöðum útí sveit. Það er góðar líkur á að þeir verði heldur ekki æskilegir heimilishundar.
- og þar af leiðandi banna að hægt séð að setja hvolpakaup á raðgreiðslur!! Það verður til þess að fólk getur labbað út með hund án þess að eiga krónu. Td þyrfti að borga lágmarks upphæð út.
* Þegar ég segi óvart þá meina ég að hundurinn hafi verið óöruggur þegar barn kom upp að honum og hann hafi gefið frá sér merki um að koma ekki nálægt. td bakka, sleikja útum, líta undan, geispa, urra eða álíka en barnið hefur ekki séð eða skilið þessi merki og heldur áfram að hundinum til að klappa. Hundinu finnst hann semsagt ekki eiga annara kosta völ en að bíta frá sér til að losna undan þessu áreiti.
Það eru mjög margir hundar hræddir við börn þar sem þeir eru ekki vanir því hvernig börn hegða sér. Það er ábyrgð eiganda hundsins að lesa þessi merki og passa upp á að ekkert komi fyrir.
** Af hverju að láta hunda kosta pening? Margir fá sér allt í einu þá hugdettu að fá sér hvolp eftir að hafa séð auglýsingu um gefins hvolp á netinu. Að fá sér hvolp án þess að hafa hugsað sig tvisvar um er sjaldan sniðugt. Ef hundar kosta smá pening þá erum við að sía út helling af fólki.
Þetta eru mínar hugleiðingar varðandi þetta. Getur vel verið að ég sé með fleiri en man það ekki í augnablikinu.
Í lokinn vil ég minna á mína nýju heimasíðu heidrunklara.is
Bloggar | Breytt 6.8.2011 kl. 22:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.6.): 1
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 17
- Frá upphafi: 71046
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 16
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Nýjustu færslur
- Kæri Tómas Oddur - varðandi að hunsa hundareglur
- Hvolpar og hátíðarnar
- Skulum ekki banna fleiri hundategundir...
- hundaþjálfara nám.
- Hversu oft á viku æfiru hundinn?
- Sumir lausagöngu hundar kunna ekki að lesa....
- Spurning frá lesanda. - Sveitahundar
- Páska æfingar
- Innkall
- Fyrsti hvolpurinn/ einkatími
- Taumganga.
- Hundar þurfa að hafa garð?
- Hvernig hundaþjálfari viltu vera?
- Spurningar frá ykkur
- Þeir vilja banna hundahald á Akranesi! (??)
Eldri færslur
- Júní 2012
- Desember 2011
- Ágúst 2011
- Janúar 2011
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Febrúar 2009
- Nóvember 2008
- Október 2008
- Júlí 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Bloggvinir
Spurning vikunar
Tenglar
Námskeið
- Taumganga stutt námskeið til að læra taumgöngu og ná sambandi við hundinn úti
- Fyrsti hvolpurinn/einkatími hægt er að panta mig í heimsókn til að fræðast um hvolpinn.
- Innkall Auðveldar æfingar til að bæta innkallið.